mánudagur, desember 20, 2004
16 dagar í jólafríi
Vá, það er dálítið langt, og alveg tvær vikur eftir...úff..og enga vinnu að hafa, svo ég er aðalega bara heima að dúlla mér.
Bróðir minn var svo ,,heppinn" í ,,óheppninni", en hann lenti í smá veltingi á aðfaranótt sunnudags, og má sjá afraksturinn HÉR . Vinur hans átti bílinn og var að keyra, og voru víst að taka fram úr stelpu á hraðbrautinni og á miklum hraða, í hálkunni, og hann missti svo stjórn á bílnum sem stefndi fyrst á ljósastaur en svo út í fjöru þar sem hann tók tvo veltinga og endaði á stórum stein. Brósi slapp sem betur fer bara með smá skrámur á hné og mar, og er vonandi reynslunni ríkari um hvernig á ekki að keyra. Vinur hans slapp líka alveg. Einnig er að sjá afrakstur árekstur hans fyrir sunnan HÉR, en við erum búin að losa okkur við bílinn.

föstudagur, desember 10, 2004
Vesturferð
loksins komið að því, lagt verður af stað frá mosó kl 7 á eftir, ég er búin að vera í allan dag að taka til heima, pakka og þrífa og það var ekki fyrr en um 2 leitið sem ég lagði loka höndina á íbúðina og þorði að skilja hana eftir í höndum bróður míns, sem að sjálfsögðu fékk langan lista yfir það sem hann þarf að gera áður en hann fer úr íbúðinni á Sunnudaginn....ég á samt örugglega eftir að vera í stanslausu símasambandi við hann, til að útskýra fyrir honum hina og þessa hluti, hvaða sápu á að nota til að þrífa baðið, og hvernig hann eigi að gera hitt og þetta, og svo tékka hvort hann hafi gert allt sem þarf að gera svo eigandi íbúðarinnar geti komið í hana skikkanlega þegar hann leigir hana af okkur yfir jólin, ég geri allavega kröfur til þess að ég fái íbúðina í sama horfi til baka!
Vesturferðar Planið hefur samt aðeins breyst, því ég mun dvelja í Æðey á föstudag og laugardag og koma svo heima á Sunnudag, held það verði samt bara stuð, fæ vonandi að fara á skitterí :) hehehe...en núna ætlum við líka að bæta upp mistökin sem við gerðum þegar við fórum í eyjuna síðast, en þá gerðum við þau mistök að treysta á matargerðina hjá veturseturfólkinu, sem var svo minni en maginn okkar vildi, svo nú ætlum við að hlaða okkur upp af millimáltíðum, og kvöldsnarli :)
Er annars núna að næla mér í smá góðgæti upp í skóla til að eyða kvöld stundunum yfir..rakst á margt kræsilegt :)
úff, held ég drífi mig í háttinn núna, en hlakka ekkert smá til að komast vestur, því þá byrjar loksins hið raunverulega jólafrí!!!

þriðjudagur, desember 07, 2004
tiltekt og stúss
Það er ótrúlegt hvað það er mikið að gera þó maður sé kominn í jólafrí, það hrúast eiginlega allt á mann núna þessu seinustu viku áður en kemur að vesturferð, sem hefur verið frestað í allan vetur. Jólafrísdagskráin er svo stíf að ég þurfti að fara á fætur kl 8 í morgun, og nei, ekki til að fara í skólann, heldur til að stússast. Get samt ekki beðið eftir að komast vestur á föstudaginn, úff hvað ég hlakka til.
Allur dagurinn í gær fór í að sortera uppskriftir sem ég hef gripið héðan og þaðan, og setti þær allar í plastvasa, rosa flott og vel skipulagt, varla hægt að búast við öðru af mér!
Fór til Unnar í morgun og hjálpaði henni að pakka smá dóti úr eldhúsinu sem við fórum svo með í nýja húsið í garðabænum, og er húsið ekkert smá geðveikt flott, crazy alveg, missi samt af aðalflutningunum sem verða á helginni, en ætla kíkja aftur til hennar í fyrramálið og hjálpa meira til :)
Bakaði svo tvær kökur í dag, Himneskt Rice, eins og ég var með í afmæli bróður míns um daginn, en hann er orðinn 18, geðveikt góðar kökur, en ætla fara með eina í vinnuna (Lyfju) eins og ég lofaði í sumar (sem ég átti samt að koma með í ágúst) og ná í leiðinni í skattkortið mitt svo maður geti unnið um jólin heima. Hina kökuna tek ég með mér til Snorra frænda annað kvöld, en þá er síðasta máltíðin fyrir vesturferðina og lýkur því þeim miðvikudagskvöldverðum sem staðið hafa þar yfir í allt haust og hafa þýtt mikið fyrir okkur systkynin. Ekkert betra en að eyða kvöldinu í rólegheitunum þar.
úff...þarf núna að fara hella mér í bókhaldið, sem í augnablykinu er bara blaðabunki sem hefur verið troðið saman inn í möppu án þess að vera sett í hana...alltaf sama pappírsflóðið þar, afhverju getur maður aldrei haldið þessu við og sett í möppuna jafn óðum og haft þetta fínt og flott og skipulagt, án undantekninga! Hef samt verið dugleg að halda við rafræna bókhaldinu mínu í excel, sem ég er ekkert smá stolt af og er í sífeldum endurbætum og hönnun, á samt eftir að stemma það af...úffff!!
jæja, þýðir varla að vera hér bara og stynja, verkin tala sínu máli...svo mest að ráðast á þetta....bókhald..hér kem ég!!

mánudagur, desember 06, 2004
Hið langþráða jólafrí!!!
jæja ladyz and gentelmen stundin er runnin upp, jólafríið er komið og hið sveitta próftímabil yfirstaðið...nú er bara að bíða eftir jólunum, og já náttúrlega einkununum, en sá sáir sem hann uppsker..nei bíddu við..sá uppsker sem hann sáir var það víst :)
ÉG er búin að vera hinn mesti leti bloggari..svo ég ætla bara rétt að stikkla á stóru fyrir ykkur sem ekki vitið, hvað sé svona helst í fréttum, og þá aðalega það sem ég man
Nr 1. við erum orðin bíllaus aftur við systkinin því bróðir minn var svo óheppinn að lenda í árekstri og í órétti og bíllinn í klessu en drengurinn í lagi, svo það er bara einkabílstjóra fílingurinn aftur, meina maður horfir bara á jákvæðu hliðarnar, mikill bensínsparnaður :)
Nr 2. er að fara vestur á föstudaginn jibbý, ætli maður reyni ekki að vinna smá og svo njóta þess að komast burt frá borginni..úff hvað verður gaman að koma aftur í þennan litla sæta bæ
Nr. 3 fór á landstjórnarskipti hjá JCI í gær, sem var í leið jólahlaðborð, með þessum dýrindis mat, svo þetta var alveg frábært kvöld, nema þegar leið á miðnætti var ég svo uppgefin að ég meigaði ekki niður í bæ á próflokadjammið á gauknum, svo ég fór bara heim að sofa :)
Nr 4. man ekkert meira því heilinn á mér er gjörsamlega tómur, hann yfirfyltist víst á próftímabilinu þó ég hafi nú tæmt það í dag þegar ég gerði ekkert annað en að liggja upp í rúmmi og horfa á video..djöfull var það yndislegt :)