<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, september 28, 2004

Do it NOW!!

Ég þoli ekki að þegar hlutirnir þróast þannig að það er svo mikið að gerast og mikið að segja frá að maður endar á því að segja frá engu því allt verður svo yfirþyrmandi að á endanum kemst maður ekki yfir það....

Ég ætla samt að byrja á því að tilkynna ykkur það að ég er Trúnaðarmaður 2. árs í viðskiptafræðideild sem er bara gott mál og mun líta vel út á CV-inu :). Þetta er ekkert flókið hlutverk og spilar sig eins og í fyrirtækjum, þ.e.a.s. ef nemendur hafa e-ð að kvarta yfir, já eða þá að hrósa, þá koma þau því til mín og ég kem því áleiðis á rétta aðila svo hægt sé að vinna úr því. So kids start complaining ;)

Helginni var annars eytt á Húsavík á Landsþingi JCI sem var alveg stórkostlegt. Fyrir ykkur sem þekkið ekki til JCI þá er tilgangur Junior Chamber International að stuðla að framþróun alþjóðasamfélagsins með því að veita ungu fólki tækifæri til að efla leiðtogahæfileika sína, félagslega ábyrgð, frumkvæði og samkennd til að stuðla að jákvæðum breytingum.

Ég sem sé gekk til liðs við JCI Reykjavík núna í september eftir að hafa tekið námskeið í Ræðu 1 í vor og ákvað að skella mér bara á mitt fyrsta landsþing. Það var mikið stuð og mikið djamm sem lýsir sér best á myndunum HÉR. Á fimmtudaginn var mætt á svæðið, föstudagurinn fór í þingfundi og þemakvöld sem var stórglæsilegt og átti JCI Vest vinninginn en hún móðir mín er senator í því félagi.

Laugardagurinn byrjaði á stórkostlegu námskeiði hjá Kerry Gleeson sem hét "Do more in less time" og var algjör snilld, sérstaklega því hann var að segja manni hluti sem maður vissi alveg, en einfaldlega gerði ekki eða áttaði sig ekki og þarf einfaldlega að láta segja sér eins og t.d. hvað þvílík tímasóun sumir hlutir eru sem maður gerir.
Af þessu námskeiði lærði ég mottó sem mun verða mitt framvegis og er DO IT NOW! Nú mun maður einfaldlega hætta að forgangsraða hlutum, annaðhvort gerir maður hlutina strax sem þarf að gera og þeir hlutir sem hafa minni forgang gerir maður einfaldlega ekki því þeir eru ekki verðir manns tíma :)

Ætla taka dæmi fyrir ykkur um hvar er hægt að ná miklum tímasparnaði og það liggur í hinum blessaða tölvupósti! Þið vitið hvernig þetta er þegar þið opnið póstinn ykkar, þið byrjið á því að kíkja í fyrsta bréfið, (já þarf ekki að gera þetta strax), já svo næsta (geri þetta seinna)...svo næsta og svo næsta og áfram heldur þetta í gegnum allan póstinn. Þegar búið er að skoða póstinn einu sinni, er hann skoðaður aftur. Fyrsta bréfið skoðað, já geri þetta seinna, næsta skoðað, eyði því, þriðja skoðað, geymi þetta og svo framvegis.
Þvílík tímasóun, en samt gerum við þetta öll....

Í staðin er málið, skoða fyrsta bréfið og svara, skoða næsta og svara, skoða þriðja og eyða og halda svona áfram í gegnum póstinn þangað til inboxið er orðið tómt og öllu svarað sem þarf að svara. Lykill er líka að hafa bara ákveðinn tíma þrisvar á dag sem maður skoðar póstinn í staðin fyrir að vera alltaf að skoða hann í hvert skipti sem bíbar því oft er þetta póstur sem þarf bara eyða og þá í staðin rennur maður yfir allan póstin t.d. á morgnana..hádeginu..og kvöldin..skoðar, svarar strax eða eyðir og með þessu sparast ógulega mikill tími. Tileinki sér þetta þeir sem vilja, en það mun ég pottþétt gera svo verið viss um að ég svara ykkur ekki nema á morgnana, hádeginu eða á kvöldin ;)

Laugardagurinn fór svo í nýliðaprógramið sem ég var í og þurfti ég að kynni fyrir þingheiminum hugmynd að samfélagsverkefni sem gekk bara nokk vel. Við tók svo glæsilegt galakvöld sem endaði í náttfatapartý og það finnst mér bara snilld. Í staðin fyrir að fólk fari bara upp að sofa, því maður verður alltaf þreyttur á því að vera uppstrílaður í galaklæðnaði þá bara skelti fólk sér í sín náttföt og kom aftur niður og áfram hélt gott djamm.

Á sunnudeginum var námskeið með Gísla Blöndal um "Hver tók ostinn minn?" . Snilldar námskeið sem fjallaði um mikilvægi þess að vera opinn fyrir nýjungum og ekki festast í gömlu fari og einfaldlega fylgjast með og vera viðbúinn breytingum. Osturinn er samlíking tækifæris.

Heimleiðin gekk vel, nema það kom upp smá vandræði með rútu vestfirðingana því þegar þeir bræður Snorri Örn Rafnsson og Rúnar Örn Rafnsson fóru á lögreglustöðina til að blása þá kom það í ljós að rútan gæti í fyrsta lagi lagt af stað um 5 leitið...hahahahaha. Þessu var samt reddað með félaga frá Reykjavík sem keyrði rútuna að Staðarskála og var þá orðið óhætt fyrir þá bræður að taka við rútunni.

Þetta var sem sé í heildina æðisleg helgi og er það bókað mál að ég mun fara á næsta landsþing :)


miðvikudagur, september 22, 2004

Harkan byrjuð og landsþing JCI framundan :)

Jæja það þýðir víst lítið að lengja sumarfríið..það er búið...skólinn kominn á fullt og ég loksins..loksins..loksins búin að fá tölvuna mína..sem virðist loksins vera komin í lag.

Ég sem ætlaði að gera svo mikið í sumar...setja upp heimasíðu..læra (ein bjartsýn) og margt margt fleira...en þar sem nettengið eða protið aftan á tölvunni hafði skekst og e-r vírus látið kræla á sér þá fór tölvan mín til Heimis frænda í byrjun júní...sem er ekki frásögu færandi nema frændi minn er svo busy að það var ekki fyrr en í byrjun ágúst að e-ð fór að gerast. Tölvan var send til Nýherja sem setti nýtt móðurborð í hana og fekk ég tölvuna afhenda 25 ágúst..daginn fyrir afmælisdaginn..nema hún var tóm..engin gögn og engin forrit..Fékk samt gögnin fljótt frá Heimi..og var ekkert of lengi að setja upp hin mikilvægustu forrit..t.d. MSN :).

Þessa sömu helgi flutti ég aftur inn í íbúðina á Birkimelnum þar sem búið er að koma sér vel fyrir....úff..en held ég meigi ekki að standa aftur í þessu næsta sumar..nenni ekki að búa í gám :(

allavega...tölvan var nú samt ekki orðin alveg sátt því hún tók upp á því að slökkva á sér og batterýið flökktaði frá 34% hleðslu niður í 4% hleðslu..sem er alls ekki gott..Svo aftur var hringt í Heimi..og aftur fór tölvan inn til Nýherja í viku....og kom til baka með nýtt batterí..

já neinei..sagan er ekki búin

Eftir að ég fékk nýtt batterí virkaði tölvan vel laugardag og sunnudag..nema á mánudag þegar ég kom heim úr skólanum og ætlaði að fara reikna tölfræði þá bara nei nei..hún kveikti ekki á sér..svo það var aftur hringt í Heimi frænda og aftur farið með tölvuna til Nýherja...og jájá..haldið þið að ég hafi ekki bara fengið gallað móðurborð...úfff...Er núna komin með nýtt og sem betur fer hefur ekkert komið upp á ennþá...7..9...13

Svo fyrir utan þessi tölvuvandræði þá tók það okkur heilan helling að fá netið tengt heim aftur hjá þessu Voðafón fyrirtæki...en út á allt vesenið fengum við fyrsta mánuðinn frían í adsl og heimasíma...hægt að brosa yfir því..þótt það hafi verið orðið dálítið pirrandi að tala við þetta fólk..tvisvar á dag i heila viku

Jæja..ég er á leið á Landsþing á Húsavík á morgun og verð fram á Sunnudag en ég gekk inn í JC reykjavík í byrjun september eftir að hafa farið á ræðunámskeið í vor.

Annars er búið að vera fullt að gerast en ég fór t.d. til Noregs 19 ágúst áður en skólinn byrjaði og hitti Helgu sem var bara æði og rosa gaman...setti inn myndir hér

jæja verið að reka á eftir mér í mat og verkefnavinnu...ætla vera duglegri að skrifa núna svo við heyrumst....endilega skrifið í gestabókina :)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?