<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, maí 28, 2004

Edith piaf

vááááá...þvílík sýning...þvílíkur söngur...þvílíkt náði þetta til manns...úfff..söngurinn ómar enn...og gæsahúðin sem fór um mann...svo var svo klappað mikið að mig var farið að sviða í lófana...mæli með þessu leikriti!

Fór sem sé með lyfju í leikhús í kvöld í boði actavis og tókum við c.a. fjóru efstu bekkina í Þjóðleikhúsinu. Í hléinu fengum við veitingar í þjóðleikhúskjallaranum sem voru ekki af verri endanum...rauðvín og snittur..og skemmtum við okkur allar þvílíkt vel og nú verður edith piaf bara spiluð í vinnunni á morgun :)

Kíktum svo á Enrico's bistro og vinbar sem er á móti kofa tómasar frænda...og er það ekkert smá flottur og kósý staður...og með illy kaffi sem ég náttla dýrka...og rosalega þægilega sófa :) stelpur..verðum að kíkja þarna við tækifæri!

annars er það bara vinnan á morgun...og er að verða búin með mínar fyrstu tvær vikur í nýju vinnunni..og ekkert smá gaman...æðislegt starfsfólk þarna..svo mikið stuð í því og alltaf tilbúnar að gera e-ð skemmtilegt samana...líst ekkert smá vel á þetta :) jæja..kveð annars bara í bili..góða nótt :)

sunnudagur, maí 23, 2004

Fréttablaðið síða 13




föstudagur, maí 21, 2004

Grænir fingur

Það var hópferð úr vinnunni í Garðheima í hádeginu í dag þar sem ég skellti mér bara á nokkrar matjurtir. Keypti Basil, Myntu, Chilli og Steinselju og ætla ég að sá því um leið og ég er búin að flytja í íbúðina hennar Söndru og verður gaman að sjá hvernig tiltekst. Svo ætla ég að vera dugleg að prófa elda nýja rétti í sumar svo maður geti eldað e-ð annað en pasta næsta haust og svo verða nokkrir coctailar prófaðir, en myntan er einmitt tilvalin í það :) Hehe svo verður bara útvöldum boðið í mat í að prófa herlegheitin með ferskum matjurtum..víííí

Annars er það helsta í fréttum að Hagar seldu 100% hlut sinn í Lyfju í morgun og var okkur tilkynnt það á morgunfundi. Vís keypti af Högum og mun fá fleiri fjárfesta í með sér en er það trúnaðarmál hvert kaupverðið var. Í tilkynningu frá VÍS segir að stjórnendur fyrirtækisins líti á Lyfju sem álitlegan fjárfestingarkost, öflugt og framsækið fyrirtæki með hæft og gott starfsfólk. Fyrirtækið hafi náð góðum árangri í rekstri á markaði sem fest bendir til að muni vaxa á næstu misserum. Markmiðið sé að efla Lyfju enn frekar. Annars er spurning um hvort þetta gangi í geng en ekki hefur alveg verið gengið frá öllum samningum og samkvæmt frétt sem byrtis í framhaldi af þessu í dag er spurning um hvort þetta sé lögleg kaup en greiningardeild Landsbankans lýsir efasemdum um að kaup VÍS á Lyfju samræmist lögum sem gildi um vátryggingastarfsemi. Segir í Vegvísi Landsbankans, að VÍS sé með þessum kaupum að færa sig inn á svið fjárfestingarbankastarfsemi. Þar segir, að vátryggingafélag megi ekki reka aðra starfsemi en vátryggingastarfsemi, nema að um sé að ræða hliðarstarfsemi sem upptalin er í 11. grein laganna.

Það er allavega allt í gangi og verður maður bara að fylgjast með og sjá hvernig hlutirnir þróast :) Annars er bara stemmingin tekin á lær fram á nótt með Beggu elsku, en við höfum komið okkur vel fyrir í stofunni heima hjá mér með kræsingar og fjármála bækur og reikningar flæðandi um gólfin...Djöfull verður fagnað á morgun :)

þriðjudagur, maí 18, 2004

Fyrsti vinnudagurinn - Blaðamannafundur - ítalska versus spænska

Tveir fyrstu vinnudagarnir liðnir og það voru bara nokkuð nettir dagar. Bara búin að vera koma mér inn í hlutina, kynnast liðinu sem er rosa fínt, held það eigi bara eftir að vera rosa stuð þarna í sumar. Byrjaði líka rosa vel, fékk tvær marsípantertur fyrsta daginn, frí miða í leikhús þarnæsta fimmtudag á Edith Piaf í þjóðleikhúsinu. Það sem mér finnst samt flottast er að við stöndum upp tvisvar á dag til að gera leikfimisæfingar...finnst það snilld :)

Það var svo hringt i mig úr HR í dag þar sem mér var tilkynnt um að hópurinn minn í Stofnun og Rekstri sem gerði viðskiptaáætlunin að Þríhnúkum hafi verið einn af tveimur hópum sem valinn var til að fara á blaðamannafund á morgun og kynna námskeiðið og verkefnið. Og þetta eru náttla bara góðar fréttir og gaman verður að sjá hvað spynnst út frá því :)

Dálítið fyndið gerðist svo áðan þegar ég var að logga mig inn á msn en þá fékk ég tilkynningu um að e-r hefði addað mér. Eftir nokkra umhugsun á þessu langa nafni sem byrtist ákvað ég að skella mér bara á accept. Jájá..þetta var þá e-r 13 ára stelpuhnáta frá Madrid á spáni og áttum við mjög skondið samtal. Þar sem það er langt síðan ég lærði spænsku og er akkúrat í ítölsku námi núna þá bara blaðraði ég við hana á ítölsku og fékk svo svör til baka á spænsku. HAHAHA þetta var rosa fyndið samtal, því svo áttum við báðar smá erfitt með að fatta strax hvað hin var að fara. ´Hef samt ekki hugmynd um afhverju og hvernig hún addaði mér inn!

Yfir og út

laugardagur, maí 15, 2004

Eurovision tryllingur

jæja, þá er komið að því, Eurovision í kvöld og allir komnir í fílinginn og á leið í partý. Partý plönin mín breyttust skyndilega því össa var boðið í annað partý, en planið var að fara til hans. Í staðin ætla ég bara elda gott pasta og Sandra ætlar að koma og jafnvel Begga og við ætlum að sko að vera með brjálað partý og staupa vatnsglösum í hvert sinn sem Ísland fær stig...hahahhaha...við erum sem sé allar bara að læra þessa dagana svo í litlum filing fyrir alvöru djamm, en við ætlum að skemmta okkur samt sem áður...og þeir sem halda að það sé ekki hægt að skemmta sér án áfengis...þeir hafa sko rangt fyrir sér :) Annars finnst mér ekki nógu sniðugt að bróðir minn sé stunginn af til Ísó, því íbúðin mín er í rúst og ég hef engan tíma til að taka til og engan bróður til að skikka til þess :) djöfull, vill e-r koma og taka til hjá mér?...hahahahahah

föstudagur, maí 14, 2004

jæja, það er ekki gott veður í dag og þess vegna tók ég þá ákvörðun að afskrá mig úr vorferð visku sem verður á eftir en hún er haldin í Hlöðum í Kjósi (hvar sem það nú er) með grillveislu og endalaust fríum bjór. En nei, ég ætla vera heima og læra því mér finnst það svo endalaust skemmtilegt! Kynningarnar í stofnun og rekstri kláruðust í dag en við vorum með okkar kynningu á miðvikudaginn, og sem betur fer, frétti að gestadómararnir sem voru í morgun hefðu rifið í sig hópana og svoleiðis dúndrað þá niður með fáránlegum spurningum! Ég er nú samt búin að hlaða niður e-u efni fyrir kvöldið, svo ég tek mér kannski smá pásu til að horfa á Smallville og charmed :) En jæja, yfir og út, and back to the studiing
Dýrka fimmtudaga, þeir eru oftast einu skemmtilegu dagarnir í annars einhæfri dagskrá...þið vitið..þessi læra.læra.læra.læra dagskrá. Venjan er að við systkinin förum í mat til Snorra frænda, en þar sem brósi er farinn vestur þá fór ég bara ein í kvöld, og svo var bara skellt sér í bíó alle famelien. Fórum í laugarásbíó á Secret window með Johny Depp, bara nokkuð nett, tók alveg á taugarnar. Það sem er líka skemmtilegt við fimmtudaga fyrir utan að slaka á hjá frænda, þá er alltaf svo gott á skjánum þannig það er komið í vana að horfa bara á tv á fimmtudagskvöldum, fyrir utan að núna reyni ég alltaf að ná john doe í endursýningu á sunnudagskvöldum. Það er c.a. eina sjónvarpsglápið, fyrir utan náttla að við systkinin erum háð friends og smallville og horfum alltaf á þá um leið og þeir koma á netið :) Fyndið hvað maður getur orðið háður e-u svona annars óþarfa hlutum! Ég er einmitt reyndar líka fallin fyrir charmed og næ í þá þætti alltaf á netið líka...vá þegar ég hugsa um það þá horfi ég bara á slatta af þáttum!!! En talandi um að vera háður e-u þá er ég algjörlega háð tölvunni minni, gæti ekki lifað án hennar og þar á eftir kemur síminn minn...vááá..fusss...þetta gengur ekki, hvar endar þetta!

miðvikudagur, maí 12, 2004

Vá heil eilífð síðan ég bloggaði, meira segja komið nýtt look á bloggerinn..vitiði afhverju það er bloggarar?
Jæja kynningin á viðskiptaáætlun Þríhnúka hf. var í dag og gekk frábærlega, held okkur hafi alveg náð að selja hugmyndina :) Nú er bara bíða og sjá hvort okkur tekst ekki að framkvæma þetta eða förum fyrir nýsköpunarsjóð eins og draumurinn var.
Byrja svo í sumarvinnunni á mánudaginn, það verður magnað.
Annars er bara stefnana tekin á gott djamm á helginni, annað hvort lokadjamm HR á föstudaginn eða gott júró partý á laugardaginn..verður gaman að sjá hvernig það endar.
Brósi svo bara farinn vestur og ég bara með íbúðina út af fyrir mig, hálf skrítið og tómlegt, enginn brósi til að röfla í þegar maður kemur heim, á eftir að sakna hans pínu :)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?